5/18/2000
Leiðinlegur leikur

Þessi saga gerðist snemma á 10. áratugnum. Leifur Garðarsson var að dæma leik Vals og KR í úrvalsdeildinni, en leikurinn þótti heldur bragðdaufur svo ekki sé fastar að orði kveðið. Er líða tók á leikinn var komin upp sú staða að allir; leikmenn, áhorfendur og dómarar, voru farnir að bíða eftir því einu að leiknum lyki.

Axel Nikulásson hinn eitilharði keppnismaður lék með KR á þessum tíma og lék af miklu kappi eins og honum var lagið. Eins og menn vita átti Axel það til að leiðbeina dómurum, langoftast óbeðinn. En þegar þarna var komið við sögu var hann sennilega sá eini sem lék af fullu kappi.

Einhverju sinni þegar Axel sótti upp að körfu Valsmanna og skoraði ekki, þótti honum með ólíkindum að Leifur hafi ekki dæmt villu, svo hann hreytir út úr sé í áttina að Leifi: "Leifur! Þú verður að horfa á leikinn". Leifur svaraði að bragði, en heldur dauflega: "Ég er að reyna, hann er bara svo svakalega leiðinlegur!".

-Kristinn Óskarsson