11/8/2005
Flautaði tvær körfur af
Kristinn Albertsson er öllum kunnur, enda hefur enginn dæmt fleiri leiki í Úrvalsdeild en hann eða 432 leiki. Hann lenti í ótrúlegri stöðu í Úrslitakeppninni árið 1995 þegar skera varð úr um í tvígang í tveimur leikjum hvort karfa hefði verið löglega skoruð á síðasta sekúndubroti leiks.
Í fyrra skiptið dæmdi Kristinn fyrsta leik UMFG og Keflavíkur í undanúrslitunum í íþróttahúsinu í Grindavík. Jón Kr. Gíslason setti niður þriggja stiga körfu í blálokin en Kristinn ákvað að karfan væri ekki gild og Grindvíkingar fögnuðu 74:71 sigri og náðu forystunni í rimmu liðanna.
Í leik liðanna nokkru síðar lenti hann aftur í því að þurfa að skera úr um lögmæti körfu. Þá hafði Marel Guðlaugsson skorað körfu, sekúndubroti áður eða eftir að klukkan gall. ““Kristinn, sem aðaldómari, varð að skera úr um hvort karfan væri gild eða ekki. Hann dæmdi körfuna ekki góða og því varð að framlengja. Kristinn skoðaði atvikið í hægri endursýningu á Stöð 2 áður en hann tók ákvörðun. Það hjálpaði mér ekkert að skoða þetta á Stöð 2," sagði Kristinn við Morgunblaðið eftir leikinn. Skoðanir manna voru skiptar, virtust fara eftir því með hvoru liðinu menn héldu, en er hægt að vera alveg viss í svona stöðu? "Já, auðvitað getur maður verið alveg viss," sagði Kristinn.”
-Eggert Þór Aðalsteinsson
|
|