Próf úr leikreglum í körfuknattleik
 
1)
Lið A hefur vald á knettinum. Dæmd er tvívilla á A4 og B4. Lið A heldur því valdi á knettinum og 24 sekúndna skotklukkan er ekki endursett.
Rétt Rangt
2)
Öll ný körfuspjöld skulu vera 1.05m x 1.80m.
Rétt Rangt
3)
Fimm mínútum áður en leikur hefst eru dæmdar tvær tæknivillur. Villurnar eru á sitt hvorn leikmanninn í liði A. Dómari lætur skrá villurnar, veitir liði B tvö vítaskot og lætur hefja leikinn með dómarakasti.
Rétt Rangt
4)
Leikmaður A1 er að taka vítaskot og hittir úr báðum. Áður en knötturinn er kominn í leik biður þjálfari B um leikhlé. Ber að veita honum það?
Nei
5)
Lið B fær leikhlé sem það hafði löglega beðið um. Mega leikmenn beggja liða setjast á varamannabekkina meðan leikhléið stendur yfir?
Nei
6)
A6 hefur vald á knettinum utan vallar tilbúinn til að taka innkast. Hefur lið A þá vald á knettinum?
Nei
7)
Leikmaður D5 keyrir að körfunni, leggur knöttinn í spjaldið ofan körfuhrings. Þegar knötturinn er enn á uppleið slær leikmaður C7 knöttinn frá körfunni. Dómarinn dæmir körfu gilda.
Rétt Rangt
8)
A4 fær dæmda á sig óíþróttamannslega villu. Í kjölfarið er dæmd tvívilla á A6 og B8. Þjálfari liðs B fær því næst dæmda á sig tæknivillu. Leikmaður B7 fær líka dæmda á sig tæknivillu. Fyrsta og þriðja refsingin jafnast út svo og tvívillan og lið A fær því tvö vítaskot og innkast við miðlínu.
Rétt Rangt
9)
Lið A og B eru reiðubúin að hefja leik með dómarakasti. Dómarinn stígur inn í miðjuhringinn til að framkvæma dómarakastið en þá dæmir hinn dómarinn tæknivillu á leikmann B6. Lið A fær því tvö vítaskot og síðan er dómarakastið framkvæmt.
Rétt Rangt
10)
Leikmaður á rétt á að leika hafi nafn hans verið ritað á leikskýrslu fyrir upphaf leiks og hann ekki verið útilokaður eða fengið fimm villur.
Rétt Rangt