Lög Körfuknattleiksdómarafélags Íslands

1. GREIN
Körfuknattleiksdómarafélag Íslands (KKDÍ) er félag allra körfuknattleiksdómara á Íslandi. Aðilar að KKDÍ geta þeir einir orðið sem lokið hafa körfuknattleiksdómaraprófi sem viðurkennt er af KKDÍ, og greitt hafa árgjald KKDÍ. Aðsetur félagsins er í Reykjavík.

2. GREIN
Tilgangur félagsins er að:
          1. Gæta hagsmuna félagsmanna KKDÍ.
          2. Viðhalda og efla samheldni félagsmanna.
          3. Styðja félaga KKDÍ til menntunar, endurmenntunar og reynsluöflunar í dómgæslu.

3. GREIN
KKDÍ er stjórnað af:
          a) Dómaraþingi.
          b) Stjórn KKDÍ, milli dómaraþinga.

4. GREIN
Dómaraþing fer með æðsta vald í málefnum KKDÍ. Á dómaraþingi hafa félagsmenn, sem voru félagsmenn 1. janúar og eru skuldlausir við félagið, atkvæðisrétt og fer hver þeirra með eitt atkvæði. Auk þess getur félagsmaður farið með eitt annað atkvæði hafi hann til þess skriflegt umboð. Auk þeirra eiga rétt til fundarsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt:

          1. Dómaranefnd KKÍ.
          2. Formaður og framkvæmdastjóri KKÍ.
          3. Skoðunarmenn KKDÍ.
          4. Matsmenn dómara.
          5. Þeir körfuknattleiksdómarar sem gengið hafa í félagið eftir 1. janúar.
          6. Þeir félagsmenn sem eru í skuld við félagið.

          Auk þess getur stjórn KKDÍ boðið öðrum til þingsetu.

5. GREIN
Dómaraþing skal haldið á tímabilinu frá 15. maí til 30. júní.  skal til þess boðað með tölvupósti og auglýsingu á heimasíðu KKDÍ með minnst 7 daga fyrirvara.  Lagabreytingar og málefni sem óskast tekin fyrir á þinginu, skulu berast stjórn KKDÍ minnst 3 dögum fyrir fundinn.  Minnst 2 dögum fyrir dómaraþing skal senda til félagsmanna, og birta á Dómaraspjalli KKDÍ, þær tillögur sem borist hafa og liggja fyrir þinginu.

Dómaraþing telst löglegt, enda er löglega til þess boðað.

Aukadómaraþing má halda ef nauðsyn krefur eða ef helmingur félagsmanna krefst þess. Alla boðunar- og tilkynningarfresti til aukadómaraþings má hafa helmingi styttri en til reglulegs dómaraþings.

Á aukadómaraþingi má ekki kjósa stjórn, nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti kjörinnar stjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum. Að öðru leyti gilda sömu reglur um aukadómaraþing og um reglulegt dómaraþing.

6. GREIN
Störf dómaraþings eru:
          1. Þingsetning.
          2. Kosning þingforseta og varaþingforseta.
          3. Kosning þingritara og varaþingritara.
          4. Lögð fram skýrsla stjórnar.
          5. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar KKDÍ til samþykktar.
          6. Tillaga stjórnar um tekjur félagsins sbr. 9. gr.
          7. Lagabreytingar, umræður og atkvæðagreiðsla.
          8. Önnur mál.
          9. Þinghlé.
          10. Kosning stjórnarmanns til eins árs.
          11. Kosning stjórnarmanns til tveggja ára.
          12. Kosning 2ja varamanna til eins árs.
          13. Kosning 2ja skoðunarmanna reikninga til eins árs.
          14. Þingslit.

Fái fleiri en þeir sem kjósa á jafn mörg atkvæði skal kjósa um þá á ný bundinni kosningu. Verði þeir enn jafnir ræður hlutkesti.

Sé kosið í tvö embætti skal fyrst kosið í annað embættið og síðan í hitt.  Kjörseðill telst aðeins gildur ef á honum er nafn eins frambjóðanda.

Við atkvæðagreiðslur ræður einfaldur meirihluti úrslitum. Fái tillögur jafn mörg atkvæði með og móti, ná þær ekki fram að ganga. Þó þarf 2/3 atkvæða dómaraþings til samþykktar lagabreytingum.

7. GREIN
Stjórn KKDÍ fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli dómaraþinga.

Stjórn KKDÍ skipa 3 menn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum, milli formanns, gjaldkera og ritara.

Á hverju dómaraþingi skal einn stjórnarmaður kosinn til eins árs og annar stjórnarmaður til tveggja ára.

Varamenn skulu kosnir til eins árs í senn. Fyrst skal kosinn 1. varamaður og síðan 2. varamaður.  Varamenn taka sæti í stjórn, í þeirri röð sem þeir voru kosnir, ef stjórnarmenn verða ófærir um að sinna störfum eða að þeir segja af sér. Varamenn skulu boðaðir til stjórnarfunda og hafa þar tillögurétt og málfrelsi.

Stjórn KKDÍ er heimilt að ráða launað starfsfólk. Þá hefur stjórn KKDÍ heimild til að skipa nefndir sem annast sérstök störf í þágu KKDÍ.

Reikningsár KKDÍ er frá 1. maí til 30. apríl. Skulu reikningar liggja frammi 7 dögum fyrir dómaraþing.

Formaður KKDÍ boðar stjórnarfundi og stjórnar þeim.

8. GREIN
Starfsvið stjórnar KKDÍ er að:
          1. Vinna að því að tilgangi KKDÍ sé náð, skv. 2. grein.
          2. Framkvæma ályktanir dómaraþings.
          3. Gera tillögur um dómaragjöld, þóknun til dómara fyrir dæmda leiki, og gjaldskrá vegna ferðakostnaðar og uppihalds. Dómurum er óheimilt að víkja frá samþykktum stjórnar um þóknun.
          4. Setja félagsmönnum starfsreglur.
          5. Annast þau mál sem dómarar leita til stjórnar með.
          6. Standa fyrir dómarasamkomum.

9. GREIN
Tekjur KKDÍ skulu vera af árgjaldi félagsmanna, ásamt öðrum fjáröflunum sem stjórnin telur þörf á. Gildistími árgjalds er 1. ágúst til 31. júlí. Dómaraþing ákveður árgjald hverju sinni. Leggi KKDÍ dómurum til dómarabúninga að hluta eða öllu leyti eða niðurgreiðir dómarabúninga skal KKDÍ hafa tekjur af sölu auglýsinga á dómarabúninga.

10. GREIN
Tekjum félagsins skal varið til almenns reksturs félagsins, til fræðslustarfsemi meðal dómara, auk þess hefur stjórn KKDÍ heimild til að styrkja dómara til þátttöku í mótum og námskeiðum erlendis svo og annarra starfa er hún telur þurfa.

11. GREIN
KKDÍ má halda úti spjallþráðum fyrir félagsmenn undir heitinu Dómaraspjall KKDÍ.

Dómaraspjall KKDÍ skal vera vettvangur skoðanaskipta og umræðu um dómgæslu, starf félagsins og fleira tengt körfubolta.  Spjallvefurinn er lokaður almenningi.

Stjórn KKDÍ setur sér starfsreglur um aðgangsheimildir að Dómaraspjalli KKDÍ.

12. GREIN
Félagsmenn KKDÍ skulu hafa í heiðri siðareglur KKDÍ sem fyrst voru samþykktar á Dómaraþingi 2006. Stjórn KKDÍ getur starfað sem siðanefnd eða skipað slíka þegar aðstæður krefjast. Starfandi siðanefnd er heimilt að beita viðurlögum sem m.a. geta varðað brottvísun úr félaginu. Um breytingar á Siðareglum KKDÍ skulu gilda sömu reglur og um lagabreytingar félagsins.

13. GREIN
Tillaga um að leggja KKDÍ niður nær því aðeins fram að ganga, að hún hljóti 3/4 hluta greiddra atkvæða á löglega boðuðu dómaraþingi, enda séu 3/4 félagsmanna mættir.

Verði KKDÍ lagt niður, skulu eignir félagsins renna til eflingar dómgæslu í körfuknattleik í landinu.

14. GREIN
Stjórnarmeðlimur KKDÍ hefur heimild til að segja af sér af eftirtöldum ástæðum:
          1. Vegna skyndilegs áhugamissis á körfuknattleiksdómgæslu.
          2. Vegna brottflutnings úr landi.
          3. Vegna annríkis í kvennamálum.

Með samþykkt þessara laga falla öll fyrri lög félagsins úr gildi.

-Samþykkt á dómaraþingi 14. júní 2007.