3/21/2007
KKDÍ leitar aðstoðar lögfræðinga
KKDÍ
Körfuknattleiksdómarafélag Íslands hefur ákveðið að leita sér aðstoðar lögfræðinga til að meta hvort ástæða sé til að kæra ummæli Vals Ingimundarsonar til dómstóla. Ummælin féllu eftir leik í Borgarnesi þann 20. mars í viðtali við Arnar Björnsson á sjónvarpsstöðinni Sýn. Dómarar telja ummælin meiðyrði og rógburð.
|