12/20/2006
Tölfræðilegar vangaveltur fyrir Reykjanesbæjarslag
12 dómarar hafa dæmt leiki liðanna síðustu 10 ár
42,9 villur að meðaltali í leik
Rúnar Birgir Gíslason
Á morgun fimmtudag eigast við Njarðvík og Keflavík í Iceland Express deild karla. Það hafa gjarnan verið stórleikir þegar þessi tvö suðurnesjalið hafa att kappi í gegnum tíðina. KKDI.is kíkti á viðureignir liðanna síðustu 10 ár og rýndi í tölur þessara leikja. Liðin hafa mæst 48 sinnum í deild, úrslitakeppni, fyrirtækjabikar, bikarkeppni og meistarkeppni, 28 sinnum hafa Njarðvíkingar sigrað og 20 sinnum Keflvíkingar. Liðin hafa leikið 18 sinnum í Njarðvík og hafa heimamenn sigrað í 13 tilvika. Í þessum 48 leikjum hafa verið dæmdar 2058 villur og gera það 42,9 villur að meðaltali í leik, mest voru dæmdar 55 villur í leik liðanna í Keflavík 9. janúar 2005 í bikarleik en flestar villur sem dæmdar hafa verið í leik liðanna í Njarðvík voru 52 þann 13. apríl 2002 í úrslitkeppninni. Fæstar villur voru aftur á móti 28. október 2001 í deildarleik í Njarðvík og voru dæmdar 27 villur.
Dómarar leiksins á morgun þeir Björgvin Rúnarsson og Erlingur Snær Erlingsson hafa fjórum sinnum dæmt viðureignir þessara liða en aldrei í Njarðvík. Björgvin hefur átta sinnum dæmt svona viðureignir og Erlingur sex sinnum. Á þessum 10 árum hafa 12 mismunandi dómarar dæmt leiki liðanna og er það Leifur Garðarsson sem dæmt hefur flestar eða 21 og fast á hæla hans kemur svo Kristinn Albertsson með 20. Rögnvaldur Hreiðarsson, Jón Bender og Helgi Bragason hafa svo allir dæmt 10 slíkar viðureignir.
|
|