12/7/2006 12:10:18 PM
Aðalsteinn Hjartarson að dæma á fullu í Sviss
kkdi.is náði tali af honum
Rúnar Birgir Gíslason

Aðalsteinn Hjartarson dómari hélt til Sviss eftir að hann hætti að dæma á Íslandi fyrir rúmum tveimur árum. KKDI.is setti sig í samband við hann til að kanna hvað væri að frétta af honum.

Hvað er Alli að bralla í Sviss núna?
Er að njóta jólaundirbúningsins, vinna í fyrirtækinu mínu og er að dæma körfubolta á fullu.

Byrjaður að dæma aftur?
Er að dæma í efstu svissnensku deildinni eftir 3 ára hlé. Var á Íslandi í 3 ár og kom síðan hingað fullur af orku að halda áfram þar sem frá var horfið.

Hvernig gengur það?
Það gengur mjög vel. Svissnenska deildin hefur breyst mikið á þessum 3 árum. Það eru komnir mikið af erlendum leikmönnum sem flestir spila mjög vel.
Það eru ekki allir sammála um þessa breytingar þar sem nú er málið að mjög fáir svissnenskir leikmenn eru í byrjunarliði sinna félaga og það er ekki góð þróun. Reyndar eru gæði leiksins orðin betri með tilkomu fleirri atvinnumanna en sitt sýnist hverjum.

Á að stefna á að gerast FIBA dómari aftur?
Er ekki búinn að taka ákvörðun um það ennþá. Sjáum til með vorinu þegar þarf að skrá sig á upptökunámskeiðið. Væri að sjálfsögðu mjög spennandi verkefni en mjög tímafrekt. Maður verður að skoða þetta með tilliti til vinnu og fjölskyldu.

Nú er Helgi Már Magnússon að spila í Sviss, hefur þú dæmt hjá honum?
Ég dæmdi hjá honum á upphitunarmóti þar sem við dómararnir vorum að undirbúning þriggja manna dómarakerfisins með litla míkrófóna í eyrunum.
Hann stóð sig mjög vel og var það mál manna að hann hafi verið besti leikmaður Boncourt í þessum leik. Er reyndar að fara að dæma hjá honum um næstu helgi, þann 11.des MERIN – Boncourt í deildinni. Er spenntur að sjá hvernig honum gengur.

Eitthvað heyrt rætt um hans frammistöðu?
Hef bara heyrt gott af honum. Það er þó aðallega talað um hversu illa liði hans hefur gengið það sem af er tímabili. Þeir skiptu algjörlega um lið fyrir tímabilið, það er ekki einn leikmaður eftir og það gerir uppbyggingu liðsins erfiða. Þeir eru reyndar allir að koma til.

Er Alli á leið til Íslands aftur?
Ekki í bili. Er á fullu í vinnu hérna, að byggja upp fyrirtækið www.islandprotravel.ch. Maður endar alveg örugglega heima að lokum.

Fylgist Alli með íslenska boltanum?
Já, ekki spurning. Bara á netinu eins og hægt er. Gaman að fylgjast með baráttunni.

En með íslenskum dómurum?
Já. Mjög gaman að sjá tvær konur á uppleið. Áfram stelpur, þetta var það sem við þurftum. Einnig mjög gaman að sjá FIBA dómarana okkar fá öll þessi verkefni sem þeir eru að fá. Það er ekki sjálfsagt mál hjá FIBA núna að fá alla þessa leiki. FIBA skar niður dómarhópinn sinn fyrir tímabilið og það eru greinilega allir íslensku dómararnir í hópnum ennþá. Það sýnir kannski íslensku körfuknattleiksáhugafólki að íslenskir dómarar eru líklega mun betri en oft er talað um.

Eitthvað að lokum?
Gleðileg jól til allra heima. Sjáumst örugglega á einhverjum leiknum eftir áramótin.