11/13/2006 9:12:57 PM
Walsverji og Svíi
Jones og Forsberg dæma
leiki Njarðvíkur og Keflavíkur
Rúnar Birgir Gíslason

Nú í vikunni leika Njarðvík og Keflavík fyrstu heimaleiki sína í Evrópukeppninni þetta haustið. Njarðvík fær úkraínska liðið Cherkaski Mavpy í heimsókn á fimmtudag og á föstudag taka Keflvíkingar á móti öðru úkraínsku liði BC Dnipro. FIBA hefur úhlutað verkefnunum til þeirra Haydn Jones frá Wales og Joakim Forsberg frá Svíþjóð og eftirlitsmaður verður Pétur Hrafn Sigurðsson. Þetta er í fyrsta skipti sem þessir dómarar dæma alþjóðlega leiki á Íslandi.

Þess má geta að Joakim var í Rússlandi í síðustu viku að dæma leik hjá liði Alexanders Ermolinskij.