7/17/2006
Einar Einarsson illa slasaður
Gunnar Freyr Steinsson
 | | Einar Einarsson. | Þær fréttir bárust í síðustu viku að Einar Einarsson, körfuknattleiksdómari til margra ára, hefði slasast alvarlega er hann féll við veiðar í Djúpavatni.
Einar brotnaði á 7. hálslið og var fluttur til Reykjavíkur þar sem hann gekkst undir aðgerð tveimur dögum síðar. Góðu fréttirnar eru þær að hann hefur mátt í öllum líkamanum, en ljóst er að ekki mátti miklu muna að enn verr færi.
Eins og fyrr segir hefur Einar nú gengist undir aðgerð þar sem höfuð hans hefur verið skorðað af, en hann mun verða þannig næstu tvo mánuðina og hefja endurhæfingu að þeim loknum.
Einar tók dómarapróf árið 1988, þá 17 ára gamall, og dæmdi sinn fyrsta leik í úrvalsdeild þann 11. nóvember 1990. Það var leikur ÍR og UMFG, sem fór fram í Seljaskóla og unnu Grindvíkingar með 102 stigum gegn 67. Síðasta leikur í úrvalsdeild fór fram 1. mars 2005 í Grindavík, en þá sigraði Grindavík lið KFÍ með 102 stigum gegn 73. Kristinn Óskarsson var meðdómari Einars í báðum þessum leikjum. Af öðrum leikjum Einars má m.a. nefna bikarúrslitaleik karla 2003.
Aðeins eru liðin rúm þrjú ár síðan Einar var að taka sér hlé frá dómgæslu vegna bílslyss sem hann lenti í. Með ótrúlegri seiglu náði Einar að komast aftur á körfuboltavöllinn og dæma nokkra leiki í lok tímabilsins 2004-2005. Einar dæmdi tæplega 700 leiki á ferlinum, sat í dómaranefnd 1997-1999 og hefur á undanförnum árum setið í nefndum sem snúa að dómaramálum körfuknattleikshreyfingarinnar.
Einar vill koma á framfæri þakklæti fyrir þær kveðjur sem honum hafa borist síðustu daga. Þeir sem vilja senda Massanum kveðju geta gert það í þar til gerðri gestabók.
|
|