2/16/2006
Búið að útnefna dómara á bikarúrslitaleikina
Sigmundur og Rögnvaldur dæma karlaleikinn
en Kristinn og Björgvin kvennaleikinn
Rúnar Birgir Gíslason

Dómaranefnd KKÍ hefur valið þá dómara sem dæma munu bikarúrslitaleikina sem fram fara á laugardag.

Í leik Grindavíkur og ÍS verða það Kristinn Óskarsson og Björgvin Rúnarsson sem munu hafa eftirlit með umferðinni.

Þetta er í annað sinn sem Kristinn dæmir bikarúrslitaleik kvenna en síðast dæmdi hann bikarúrslitaleik ÍR og ÍS árið 1991 þar sem Kolbrún Leifsdóttir, móðir Öldu Leifar Jónsdóttur og Óskars Ó. Jónssonar, jafnaði leikinn með þriggja stiga skoti í lok venjulegs leiktíma og tryggði ÍS framlengingu sem þær svo unnu.

Þann leik dæmdi Kristinn með Jóni Otta Ólafssyni. Kristinn hefur þó tekið þátt í fleiri bikarúrslitaleikjum kvenna en hann þjálfaði lið Keflavíkur sem lék til úrslita gegn KR árið 2001. Einnig hefur Kristinn dæmt fimm bikarúrslitaleiki karla.

Þetta er einnig annar bikarúrslitaleikur Björgvins Rúnarssonar, hann dæmdi leik Keflavíkur og ÍS árið 2003 með Leifi S. Garðarssyni. Þar eins og í fyrri bikarúrslitaleik Kristins náði ÍS að jafna í lok venjulegs leiktíma og vann svo leikinn í framlengingu.

Þeir félagar Kristinn og Björgvin dæmdu einmitt saman bikarúrslitaleik Fjölnis og Njarðvíkur í fyrra.

Kristinn og Björgvin eru báðir FIBA dómarar, Kristinn tók sitt próf í Austurríki árið 1997 en Björgvin tók sitt próf í Lettlandi síðastliðið sumar.

Björgvin náði þeim áfanga á dögunum að dæma sinn 100. leik í 1. deild kvenna en Kristinn hefur dæmt 65 slíka leiki. Fyrir tímabilið var Kristinn skráður með 863 störf fyrir KKÍ en Björgvin 745 en báðir hafa þeir dæmt fjölmarga aðra leiki.

Í karlaleiknum, leik Grindavíkur og Keflavíkur, dæma þeir Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson.

Leikurinn á laugardag er þriðji bikarúrslitaleikur Sigmundar en hann dæmdi árið 2000 leik Grindavíkur og KR með Jóni Bender og árið 2003 dæmdi hann leik Snæfells og Keflavíkur með Einari Einarssyni. Þetta er aftur á móti annar bikarúrslitaleikur Rögnvaldar en fyrir tveimur árum dæmdi hann leik Keflavíkur og Njarðvíkur með Leifi S. Garðarssyni.

Sigmundur er FIBA dómari en hann tók prófið í Hollandi árið 2003.

Þeir Sigmundur og Rögnvaldur tóku dómaraprófið saman í nóvember 1994 og leiðbeinandi þeirra var Kristinn Óskarsson, það er því athyglisvert að sjá að Rögnvaldur hefur dæmt 229 leiki í Úrvalsdeild og Sigmundur 228. Fyrir tímabilið var Rögnvaldur skráður með 899 leiki fyrir KKÍ og Sigmundur 733. Í dag er Rögnvaldur orðinn næst leikjahæsti dómari sögunnar hjá KKÍ og er það aðeins heiðursmaðurinn Jón Otti Ólafsson sem skákar honum.

Iceland Express hefur látið sauma nýjar dómaratreyjur fyrir dómara úrslitaleikjanna og mun gefa dómurunum til minningar um leikina.