1/30/2006
Davíð í úrvalsdeildina
Gunnar Freyr Steinsson

Davíð í sínum fyrsta úrvalsdeildarleik.
Davíð Kristján Hreiðarsson dæmdi sinn fyrsta leik í Iceland Express deildinni í gærkvöld. Þar áttust við Fjölnir og Hamar/Selfoss, en leiknum lauk með 113-103 sigri Fjölnismanna.

Meðdómari Davíðs í þessum fyrsta úrvalsdeildarleik hans var Kristinn Óskarsson, FIBA dómari.

Þess má geta að Davíð lék á árum áður í úrvalsdeildinni; lék 127 leiki fyrir Þór Akureyri á árunum 1989-2002.

-Tölfræði Davíðs í úrvalsdeild.