11/28/2005
FIBA úthlutar verkefnum
Björgvin til Frakklands
hans fyrsti Evrópuleikur í meistaraflokki
Rúnar Birgir Gíslason

Björgvin Rúnarsson hefur fengið sína fyrstu tilnefningu frá FIBA í Evrópuleik. Hann mun dæma seinni leik franska liðsins Tarbes gegn Fenerbahce frá Tyrklandi í 32 liða úrslitum Evrópubikars kvenna.

Meðdómari Björgvins í leiknum verður Majid Shahab frá Wales og eftirlitsmaður Bertrand Galley frá Sviss.

Þetta er þó ekki fyrsta alþjóðaverkefni Björgvins því hann var með 18 ára landsliði Íslands í Slóvaíku í sumar.