Greinasafn KKDÍ
| 2008 | 2007 | 2006 | 2005 | 2004 | 2003 | 2002 | 2001 | 2000 | 2001 | 2000 | 2001 | 2000 | 2001 | 1999 | 2001 | 2000 | 1999 | 2001 |

2008
7/18/2008
Lárus Ingi endurkjörinn formaður KKDÍ

Aðalfundur KKDÍ var haldinn snemma í júní. Ný stjórn félagsins samanstendur af þeim Björgvini Rúnarssyni, sem kemur inn í aðalstjórn í fyrsta sinn, Eggerti Þór Aðalsteinssyni og Lárusi Inga Magnússyni, en Kristinn Óskarsson lét af störfum.

6/24/2008
Haustfundur í lok ágúst

Dómaranefnd KKÍ hefur ákveðið að haustfundur dómara 2008 verði haldinn í Borgarnesi helgina 29.-31. ágúst. Nánari upplýsingar verða veittar þegar nær dregur.

1/2/2008
Kristinn og Sigmundur fá FIBAverkefni

Íslenskir dómarar fengu á dögunum verkefni á alþjóðlegri grundu en þeir dæma í Belgíu og Frakklandi nú á næstu dögum.

2007
12/16/2007
Sigmundur til Frakklands
Sigmundur Már Herbertsson heldur til Frakklands á næstu dögum og dæmir tvo Evrópuleiki.

11/23/2007
Lárus Ingi nýr formaður KKDÍ

Í gærkvöldi fundaði stjórn KKDÍ og á fundinum baðst Kristinn Óskarsson lausnar frá starfi formanns þar sem hann er önnum kafinn í MBA námi við Háskóla Íslands. Stjórnin ákvað að Lárus Ingi Magnússon yrði formaður, Eggert Þór Aðalsteinsson yrði gjaldkeri og Kristinn Óskarsson er ritari félagsins.

11/17/2007
Kristinn og Sigmundur fá FIBAverkefni

Þeir Kristinn Óskarsson og Sigmundur Már Herbertsson fengu báðir verkefni á dögunum þegar FIBAEurope úthlutaði verkefnum. Kristinn fer til Frakklands og Sigmundur til Wales.

10/22/2007 12:17:48 PM
Björgvin til Svíþjóðar

FIBA Europe úthlutaði á dögunum Sigmundi Má Herbertssyni leik í Eurocup kvenna sem hann varð því miður að gefa hann frá sér vegna anna í vinnu hjá BYKO. Það varð þó lán fyrir annan íslenskan FIBA dómara, því í stað Sigmundar fer Björgvin Rúnarsson í leikinn.

9/18/2007
Sigmundur til Noregs

Sigmundur Már Herbertsson fékk í dag tilnefningu frá FIBA en hann mun næsta laugardag dæma leik Noregs og Bosníu Hersegóvínu í úrslitakeppni B deildar kvenna.

6/17/2007
Helgi hættur, Eggert nýr gjaldkeri

Dómaraþing KKDÍ fór fram 14. júní síðastliðinn og þar bar helst til tíðinda að Helgi Bragason sóttist ekki eftir endurkjöri í stjórn félagsins.

6/3/2007
Sigmundur dæmir á Smáþjóðaleikunum

Sigmundur Már Herbertsson mun nú í næstu viku vera þátttakandi í Smáþjóðaleikunum sem fram fara í Monaco.

5/3/2007 6:45:39 PM
Guðni í stað Jóns

Önnur breyting hefur orðið á dómarhópnum sem fer á Norðurlandamótið í Svíþjóð um miðjan mánuðinn.

4/30/2007
Davíð í stað Rögnvaldar á NM

Sú breyting hefur orðið á hóp dómara sem fer á NM að Rögnvaldur Hreiðarsson kemst ekki vegna meiðsla.

4/9/2007
Búið að velja dómara á NM í Svíþjóð

Dómaranefnd hefur valið þá fjóra dómara sem munu fara með íslensku ungmennaliðunum á Norðurlandamótið í Solna í Svíþjóð 16.-21. maí.

4/2/2007
Dómarar frá sumarmót frá FIBA

Þó íslensk ungmennalandslið taki ekki þátt í Evrópukeppnum þetta sumarið hafa íslenskir dómarar fengið verkefni frá FIBA.

3/21/2007
Valur biðst afsökunar

Valur Ingimundarson hefur sent frá sér eftirfarandi afsökunarbeiðni vegna ummæla sinna á sjónvarpsstöðinni SÝN í gærkvöld.

3/21/2007
KKDÍ leitar aðstoðar lögfræðinga

Körfuknattleiksdómarafélag Íslands hefur ákveðið að leita sér aðstoðar lögfræðinga til að meta hvort ástæða sé til að kæra ummæli Vals Ingimundarsonar til dómstóla. Ummælin féllu eftir leik í Borgarnesi þann 20. mars í viðtali við Arnar Björnsson á sjónvarpsstöðinni Sýn. Dómarar telja ummælin meiðyrði og rógburð.

3/2/2007
Ruðningur gefinn út að nýju

Til margra ára var gefið út, innan hóps körfuknattleiksdómara, fróðlegt og skemmtilegt blað sem bar heitið Ruðningur. Eftir áralangt hlé á útgáfu þess hefur það aftur litið dagsins ljós.

2/26/2007 9:59:20 PM
Kristinn orðinn leikjahæsti dómari Úrvalsdeildar

Í leik Hamars/Selfoss og Grindavíkur nú á dögunum var Kristinn Óskarsson að dæma sinn 433. leik í Úrvalsdeild. Þetta er merkilegt fyrir þær sakir að þar með hefur hann dæmt flesta leiki allra í Úrvalsdeild frá upphafi en hann dæmdi sinn fyrsta leik í þeirri deild 23. október 1988, en það var leikur Njarðvíkur og Tindastóls og meðdómari var Jón Otti Ólafsson.

2/2/2007
Sigmundur dæmir í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna

Sigmundur Már Herbertsson hefur fengið tilnefningu frá FIBA Europe til að dæma leik í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna.

1/6/2007
Enn ein ferð Kristins til Frakklands

Kristinn Óskarsson hefur fengið enn eina ferðina til Frakklands en hann dæmir tvo leiki þar nú um miðjan mánuðinn.

2006
12/20/2006
12 dómarar hafa dæmt leiki liðanna síðustu 10 ár
Á morgun fimmtudag eigast við Njarðvík og Keflavík í Iceland Express deild karla. Það hafa gjarnan verið stórleikir þegar þessi tvö suðurnesjalið hafa att kappi í gegnum tíðina.

12/20/2006
Viljum nota þrjá dómara í öllum Evrópuleikjum

Helgina 8. og 9. semptember fór hinn árlegi haustfundur íslenskra körfuknattleiksdómara fram í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Þar var Richard Stokes frá FIBA-Europe gestafyrirlesari og fór yfir áherslur FIBA í dómgæslu fyrir veturinn, auk ýmissa annarra atriða sem dómarar eru sífelt að reyna að bæta. KKDI.is fékk að setjast niður með Richard eftir fundinn og tók við hann stutt viðtal.

12/19/2006 10:49:29 AM
Sigmundur Már undir hnífinn

FIBA dómarinn Sigmundur Már Herbertsson, sem kjörinn hefur verið besti dómarinn úrvalsdeildar undanfarin tvö ár, mun leggjast undir hnífinn um hádegisbilið í dag.

12/18/2006
Guðni og Jóhann í hóp A dómara

Dómaranefnd KKÍ hefur gert eftirfarandi breytingar á flokkun dómara að þeir Guðni Eiríkur Guðmundsson og Jóhann Guðmundsson hafa verið teknir upp í A hóp en Guðmundur Stefán Maríasson er orðinn B dómari.

12/12/2006
Aftur dæma Englendingur og Svíi á Ásvöllum

Þá er komið að síðasta Evrópuleiknum á Íslandi þetta haustið. Á miðvikudag taka Haukastúlkur á móti Lavezzini Basket Parma frá Ítalíu. Dómarar leiksins koma líkt og síðast frá Englandi og Svíþjóð en það eru þeir Keith Williams og Daniel Berler.

12/7/2006 12:10:18 PM
Aðalsteinn Hjartarson að dæma á fullu í Sviss

Aðalsteinn Hjartarson dómari hélt til Sviss eftir að hann hætti að dæma á Íslandi fyrir rúmum tveimur árum. KKDI.is setti sig í samband við hann til að kanna hvað væri að frétta af honum.

12/5/2006
Ellis og Asa dæma leik Hauka

Þó Keflavík og Njarðvík hafi lokið heimaleikjum sínum í Evrópukeppninni þetta haustið þá eiga Haukastúlkur enn eftir 2 leiki.

11/28/2006
Finni og Hollendingur dæma síðustu leiki Keflavíku

Njarðvík og Keflavík leika væntanlega sína síðustu Evrópuleiki á heimavelli þetta haustið. Mótherjar þeirra verða rússneska liðið Samara og tékkneska liðið Mlekarna Kunin. Dómarar leikjanna verða Mikko Toivonen frá Finnlandi og Paulus van den Heuvel frá Hollandi. Sem fyrr verður Pétur Hrafn á borðinu.

11/21/2006 9:21:28 AM
Frakki og Skot í Njarðvík og Keflavík

Í annríki Evrópuleikja á Íslandi streyma hingað erlendir dómarar. Nú vikunni leika Njarðvík og Keflavík sitthvorn Evrópuleikinn og til dómgæslu í þeim leikjum koma Frakkinn Carlos Mateus og Skotinn Chris Dodds. Sem fyrr er það Pétur Hrafn Sigurðsson sem fylgist með drengjunum.

11/13/2006 9:12:57 PM
Jones og Forsberg dæma

Nú í vikunni leika Njarðvík og Keflavík fyrstu heimaleiki sína í Evrópukeppninni þetta haustið. Það verða Walsverji og Svíi sem dæma leikina.

11/10/2006 9:09:00 AM
FIBA verkefnin hrúgast inn

FIBA dómararnir hafa fengið fleiri verkefni. Björgvin fer til Hollands, Sigmundur til Hollands og Portúgals og Kristinn til Frakklands en áður hafði Kristinn fengið aðra ferð til Frakklands og Sigmundur ferð til Eistlands.

11/7/2006 8:36:43 AM
Svíi og Eisti dæma á Ásvöllum

Nú í vikunni fer Evrópukeppni félagsliða af stað. Haukastúlkur taka á móti liði Gran Canaria á Ásvöllum á fimmtudag, 9. nóvember.

10/30/2006 1:06:20 PM
Indiana dæmi í IE deild kvenna

Í kvöld mun, í fyrsta skipti í íslenskri körfuboltasögu, kona dæma leik í efstu deild kvenna. Indíana Sólveig Marquez mun dæma leik ÍS og Keflavíkur ásamt Rögnvaldi Hreiðarssyni, og fer leikurinn fram í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Indíana, sem er 28 ára, kemur af Suðurlandinu og hefur dæmt hátt í 100 leiki á vegum KKÍ síðan hún hóf að dæma haustið 2003, en auk þess dæmdi hún í neðri deildum og yngri flokkum á Spáni í eitt tímabil.

10/16/2006 10:40:56 AM
Sigmundur og Kristinn fengu FIBA verkefni erlendis

Íslensku FIBA dómararnir fengu verkefnum úthlutað frá FIBA nýlega og fengu þeir verkefni í Eistlandi og Frakklandi, ásamt eftirlitsverkefnum á Íslandi.

10/10/2006
Sumarstörf dómara

Það má með sanni segja að íslenskir dómarar hafi verið á ferð og flugi í sumar. Þeir voru við störf í Portúgal, Spáni, Ítalíu, Grikklandi, Englandi, Finnlandi og Danmörku. Þar af fóru 3 til Finnlands og Danmerkur.

9/22/2006
Englendingur og Lúxemborgari dæma um helgina

Þá er komið að því að kynna dómara síðasta heimaleiks íslensku landsliðanna á þessu tímabili, leik Ísland og Írlands í Evrópukeppni kvenna. Dómarar verða þeir Ian Pollard frá Englandi, en hann dæmdi einmitt leik Íslands og Finnlands í Evrópukeppni karlaliða, og Michel Glod frá Lúxemborg. Eftirlitsmaður verður Alexander Faassen frá Hollandi.

9/15/2006 10:52:43 AM
Kvendómari til Íslands

Dómarar leiks Íslands og Noregs í Evrópukeppni kvenna í Keflavík á morgun eru þeir Johannes Sarekoski frá Finnlandi og Pascale Weiwers frá Lúxemborg en þetta er í fyrsta skipti sem kvendómari kemur til Íslands til sinna dómgæslustörfum við landsleik. Eftirlitsmaður verður Jan Holmin, sá hinn sami og var eftirlitsmaður á leik Íslands og Finnlands í Evrópukeppni karla.

9/13/2006
Dómarar kvöldsins

Dómarar leiks Íslendinga og Lúxemburg í kvöld eru Íslendingum ekki að öllu ókunnir en það eru Hollendingurinn Nicolaas Zwiep og Daninn Rune Larsen. Eftirlitsmaðurinn, Michael Howell frá Englandi, hefur þó ekki komið til Íslands áður en hefur verið á síðustu 11 Scania Cup, fyrst sem dómari en í seinni tíð sem eftirlitsdómari.

9/12/2006 8:00:00 AM
Einar Einars í aðgerð

Einar Einarsson, sem lenti nýverið í alvarlegu slysi, þarf að gangast undir hættulega aðgerð á morgun

9/8/2006
Í Reykjanesbæ um helgina

Haustfundur körfuknattleiksdómara fer fram í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ nú um helgina. Fundur dómaranna hefst í dag, föstudag kl 18:30 og lýkur klukkan 17:00 á morgun laugardag. Á sunnudag munu svo eftirlitsmenn vetrarins hittast og fara yfir málin.

9/6/2006 8:36:45 AM
Kynnir dómara kvöldsins

Dómarar leiks Íslands og Finnlands í kvöld eru þeir Ian Pollard frá Englandi og Jonas Bille frá Danmörku, eftirlitsmaður er góður félagi margra íslenskra dóamra, Svíinn Jan Holmin.

7/17/2006
Einar Einarsson illa slasaður

Einar Einarsson slasaðist alvarlega er hann féll við veiðar í Djúpavatni fyrir nokkrum dögum.

6/2/2006
Siðareglur KKDÍ

Félagar í Körfuknattleiksdómarafélagi Íslands samþykktu á nýafstöðnu dómaraþingi að setja sér siðareglur.

6/1/2006
Dómaraþingi lokið

Dómaraþing KKDÍ var haldið í gærkvöld á veitingastaðnum Horninu í Reykjavík. Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu, auk þess sem breytingar urðu á stjórn félagsins.

5/19/2006
Fjórir dómarar til Solna

Dómaranefnd hefur útnefnt dómara sem munu halda með íslensku ungmennaliðinum á Norðurlandamótið í Solna í Svíþjóð.

5/7/2006
Sigmundur til Kanaríeyja

Sigmundur Már Herbertsson hefur verið valinn af FIBA til að taka þátt í námskeið á Kanaríeyjum 8.-12. júní. Á þetta námskeið er boðið efnilegum dómurum sem njóta handleiðslu Miguel Betancor þennan tíma en mikill hluti námskeiðsins fer í að æfingar á þriggja manna kerfinu.

4/26/2006
Dómarabálkurinn að vakna á ný

Dómarabálkurinn virðist vera að vakna til lífsins á nýjan leik. Konráð Brynjarsson ritar nýjasta pistilinn, og bráðlega mun pistill eftir nýjasta A-dómarann birtast á þessum sama vettvangi.

2/28/2006
Davíð orðinn A-dómari

Dómaranefnd KKÍ hefur fært Davíð Hreiðarsson upp í A-hóp dómara. Hann er fyrsti nýi A-dómarinn síðan þrír voru færðir upp um hóp í desember 2004.

2/16/2006
Sigmundur og Rögnvaldur dæma karlaleikinn

Dómaranefnd KKÍ hefur valið þá dómara sem dæma munu bikarúrslitaleikina sem fram fara á laugardag. Það verða þeir Kristinn Óskarsson og Björgvin Rúnarsson sem dæma kvennaleikinn, en Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson dæma karlaleikinn.

2/6/2006
Sigmundur til Belgíu

Verkefnin halda enn áfram að streyma til íslenskra FIBA dómara. Nú hefur Sigmundur Már Herbertsson fengið úthlutað leik í 8 liða úrslitum EuroCup karla þann 24. febrúar. Leikurinn er annar leikur í seríu þar sem þarf að vinna tvo leiki, í viðureign belgíska liðsins Dexia Mons Hainaut og rússneska liðsins BC Khimki.

1/30/2006
Davíð í úrvalsdeildina

Davíð Kristján Hreiðarsson, fyrrverandi leikmaður í úrvalsdeild, dæmdi sinn fyrsta leik í þeirri deild í gærkvöld. Þar áttust við Fjölnir og Hamar/Selfoss, en leiknum lauk með 113-103 sigri Fjölnismanna.

1/23/2006
Sigmundur til Belgíu

Meðan Sigmundur Már Herbertsson er strandaglópur á Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn á leið til Rússlands útnefndi FIBA hann til starfa í Belgíu þann 3. febrúar. Leikurinn annar leikur Dexia Namur og BC Volgaburmash í Euroleague kvenna, 16 liða úrslit. Meðdómari verður Mauro Pozzana frá Ítalíu og eftirlitsmaður er Rauven Virovnik frá Ísrael.

2005
12/20/2005
Sigmundur til Rússlands
Sigmundur Már Herbertsson hefur fengið verkefni frá FIBA, hann heldur til Rússlands á þær slóðir er Jón Arnór Stefánsson lék í fyrra. Þann 24. janúar dæmir hann leik Dynamo St. Petersburg og CEZ Nymburk frá Tékklandi og meðdómarar hans verða Litháinn Virginijus Dovidavicius og Grikkinn Chrisostomos Schinas, eftirlitsmaður verður góður vinur margra Íslendinga, Svíinn Jan Holmin.

12/17/2005
Kristinn Óskarsson dæmdi sinn 400. leik í Úrvalsde

Kristinn Óskarsson dæmdi sinn 400. leik í Úrvalsdeild þegar Grindavík og Skallagrímur áttust við í Grindavík.

12/1/2005
Kristinn til Þýskalands

Kristinn Óskarsson FIBA-dómari hefur verið tilnefndur til að dæma leik Rhein Energie Köln gegn Dynamo Moskvu í Köln þann 13. desember nk. Leikurinn er í FIBA Eurocup karla.

11/28/2005
Björgvin til Frakklands

Björgvin Rúnarsson hefur fengið sína fyrstu tilnefningu frá FIBA í Evrópuleik. Hann mun dæma seinni leik franska liðsins Tarbes gegn Fenerbahce frá Tyrklandi í 32 liða úrslitum Evrópubikars kvenna.

10/25/2005
Kristinn til Litháen og Sigmundur til Þýskalands

Kristinn Óskarsson og Sigmundur Már Herbertsson fengu úthlutað verkefnum frá FIBA nú í nóvember.

10/10/2005
Sigmundur til Frakklands

FIBA hefur sent frá sér fyrstu niðurröðun fyrir leiki í októbermánuð. Sigmundur Már Herbertsson mun dæma leik franska liðsins USVO og Dynamo frá Moskvu í EuroLeague kvenna. Leikurinn fer fram í Valenciennes þann 26. október.

9/30/2005
Rögnvaldur og Eggert dæma í Danmörku

Þeir félagar Rögnvaldur Hreiðarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson halda til Danmerkur um helgina til að dæma í æfingamóti, Knock Out Cup, í Árósum.

9/13/2005
Sigmundur til Danmerkur

Sigmundur Már Herbertsson hefur verið tilnefndur af FIBA til að dæma seinni leik Danmerkur og Írlands um að komast í A deild Evrópukeppninnar að ári.

8/15/2005
Björgvin með landsliðinu í Hollandi

Björgvin Rúnarsson, FIBA-dómari, er staddur í Hollandi með A-landsliði karla, en hann mun dæma báða æfingaleiki Íslands gegn Hollendingum.

8/9/2005
Sigmundur dæmdi bronsleikinn

Sigmundur Már Herbertsson dæmdi bronsleikinn á U16 móti karla þann 7. ágúst síðastliðinn. Það voru Spánn og Litháen sem léku um bronsið, en það voru Spánverjar sem hrepptu bronsið með 70-63 sigri.

8/5/2005
Sigmundur dæmir í undanúrslitum

Sigmundur Már Herbertsson mun á morgun dæma undanúrslitaleik Litháena og Frakka í A-deild Evrópukeppni U16 landsliða karla, sem fram fer á Spáni þessa dagana.

6/24/2005
Sigmundur, Kristinn og Björgvin

Íslensku FIBA dómararnir munu dæma í Búlgaríu, Slóvakíku, Bosníu, Eistlandi og Spáni í sumar.

6/17/2005
Sigurður og Ingi unnu

Golfmót KKDÍ var haldið á Kirkjubólsvelli í Sandgerði þann 16. júní. Góð þátttaka var í mótinu og sigurvegarar urðu Sigurður Dabjartsson og Ingi M. Ómarsson frá KKDÍ.

6/9/2005
Björgvin alþjóðlegur dómari

Björgvin Rúnarsson er 11. FIBA dómari Íslands, en hann stóðst alþjóðlegt dómarapróf í Lettlandi um helgina.

5/21/2005
FIBA kynnir reglubreytingar

Alþjóðakörfuknattleikssambandið, FIBA, kynnti í gær smávægilegar breytingar á leikreglum í körfuknattleik. Svo virðist sem FIBA sé með þessum breytingum að færa sig enn nær NBA reglunum.

5/14/2005
Kristinn og Sigmundur til Andorra

Þeir Sigmundur Herbertsson og Kristinn Óskarsson hafa verið tilnefndir af dómaranefnd FIBA til að dæma fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum sem fram fara í Andorra nú um mánaðarmótin.

5/10/2005
Dómaraþing 2005

Dómaraþing 2005 verður haldið þriðjudaginn 24. maí næstkomandi.

4/18/2005
Sigmundur og Helena best

Sigmundur Már Herbertsson var valinn besti dómari 1. deildar kvenna af notendum KKDÍ.is. Helena Sverrisdóttir var valin besti leikmaðurinn.

4/18/2005
Sigmundur og Friðrik bestir

Sigmundur Már Herbertsson var valinn besti dómari Intersport deildarinnar af notendum KKDÍ.is. Friðrik Stefánsson, landsliðsmiðherji hjá Njarðvík, var valinn besti leikmaðurinn.

4/11/2005
Björgvin og Erlingur í FIBA próf

Dómaranefnd KKÍ hefur valið Björgvin Rúnarsson og Erling Snæ Erlingsson til að þreyta FIBA próf í Lettlandi í sumar

4/1/2005
Dómarar kvöldsins til viðræðu

Sigmundur Már og Erlingur Snær gefa kost á sér til skrafs um leik kvöldsins í úrslitum Intersport deildarinnar, í dag frá 17:00 til 17:40 á A. Hansen í Hafnarfirði.

3/29/2005
Fjórir dómarar til Svíþjóðar

Dómaranefnd KKÍ hefur valið fjóra dómara til að dæma á Norðurlandamóti ungmennalandsliða í Svíþjóð 5.-8. maí.

3/14/2005
Dómarar á faraldsfæti um páskana

Fimm íslenskir dómarar halda til Svíþjóðar um páskana, 4 til að dæma á Scania Cup og 1 til að sitja námskeið.

3/11/2005
Rúnar dæmir á HM skólaliða í Póllandi

Danska dómaranefndin hefur valið Rúnar Gíslason til að dæma á HM skólaliða í Póllandi í byrjun apríl.

3/9/2005
8 dómarar dæma í úrslitakeppni

Dómaranefnd KKÍ hefur ákveðið að einungis A dómarar muni dæma í úrslitakeppnum Intersportdeildarinnar, 1. deildar kvenna og 1. deildar karla. Í úrslitakeppni Intersportdeildarinnar hafa 8 dómarar fengið verkefni í 8 liða úrslitum og er það ljóst að ekki munu fleiri bætast í þann hóp.

2/28/2005
Stóra könnunin af stað

KKDÍ.is stendur fyrir viðamikilli könnun á því hverjir sköruðu fram úr í efstu deild karla og kvenna þetta tímabilið. Þetta er í sjötta skiptið sem það er gert.

2/15/2005
Sigmundur með stórleik

FIBA Europe hefur tilneft Sigmund Má Herbertsson til að dæma leik í 16 liða úrslitum FIBA Europe League karla. Leikurinn er einn sá stærsti sem íslenskur dómari hefur fengið.

1/16/2005
Kristinn fær tvö verkefni

Enn hlaðast verkefnin á FIBA dómara okkar, Kristinn Óskarsson fékk nú tveimur verkefnum úthlutað - í Belgíu og Hollandi.

2004
12/29/2004
Sigmundur á faraldsfæti
Sigmundur Már Herbertsson hefur fengið nokkur verkefni það sem af er vetri og þeim fjölgar stöðugt. Hann fékk þrjú verkefni í kringum jól og áramót.

12/15/2004
Jan Korshavn leggur flautuna á hilluna

Góðkunningi íslenskra körfuknattleiksáhugamanna, Jan Korshavn, hefur ákveðið að leggja FIBA flautuna á hilluna. Korshavn sem tók FIBA prófið í Osló 1992 ásamt Helga Bragasyni er langt frá því að vera fyrsti FIBA dómarinn á Norðurlöndum sem leggur FIBA flautuna á hilluna á þessu ári.

12/9/2004
Þrír nýir A-dómarar

Mánudaginn 29. nóvember dró til tíðinda innan dómarahópsins, en þá tilkynnti dómaranefnd um þrjá nýja A-dómara.

11/29/2004
Kristinn og Sigmundur fá FIBA verkefni

Kristinn Óskarsson og Sigmundur Már Herbertsson hafa fengið verkefni frá FIBA. Kristinn dæmir fjóra leiki í Frakklandi og Sigmundur í Hollandi og Belgíu

11/15/2004
Kristinn Albertsson leikjahæstur í Úrvalsdeild

Á haustmánuðum tók KKDI.is saman heildarfjölda leikja dómara í Úrvalsdeild frá upphafi. Því miður hefur listinn ekki verið birtur en úr því er bætt hér með.

11/9/2004
Spurt að Leifslokum

Eins og körfuknattleiksáhugamönnum ætti að vera ljóst þá lagði einn ástsælasti dómari Íslands, Leifur Sigfinnur Garðarsson, flautuna á hilluna í haust. KKDÍ.is tók hús á kappanum í tilefni af því.

10/5/2004
Kristinn og Sigmundur fá FIBA verkefni

Sigmundur Már Herbertsson og Kristinn Óskarsson fengu báðir úthlutað verkefnum frá FIBA nú í vikunni.

10/2/2004
Þrír nýir A dómarar

Þeir Gísli Páll Pálsson, Halldór Geir Jensson og Lárus Ingi Magnússon eru komnir í A hóp dómara, auk þess eru fjölmargir nýir komnir í B hópinn.

9/23/2004
Dómarar á ferð og flugi

Íslenskir dómarar eru á ferð og flugi. Sigmundur Már Herbertsson dæmdi landsleik í Noregi í gær, Kristinn Óskarsson er í Noregi að dæma á Norðurlandamóti félagsliða og Eggert Þór Aðalsteinsson dæmir í Danmörku í æfingamóti um helgina.

9/19/2004
Dæmdi þríframlengdan leik

Kristinn Óskarsson er nú á heimleið eftir að hafa verið í Írlandi og Belgíu að dæma leiki á vegum FIBA. Á miðvikudag dæmdi hann leik Írlands og Sviss í B riðli B deildar Evrópukeppninnar. Heimamenn sigruðu í leiknum 79-68 og eru í baráttu við Slóvaka um sigur í riðlinum.

9/13/2004
Ertu efni í dómara?

Dómaranefnd KKÍ og stjórn KKDÍ auglýstu í íþróttakálfi Morgunblaðsins í dag eftir dómurum. Ástæðan er einföld: Það vantar sárlega dómara til starfa.

9/3/2004
Kristinn fær fleiri verkefni

Kristinn Óskarsson hefur hlotið nýja tilnefningu frá FIBA. Þann 18. september dæmir hann leik Belga og Ungverja í undankeppni EM 2005 A deild. Í A deild er dæmt eftir þriggja manna kerfi svo Kristinn fær tvo meðdómara með sér í leikinn, þá Nikolas Mpotitsis frá Svíþjóð og Guerrino Cerebuch frá Ítalíu.

8/31/2004
Reglubreytingar 2004

Kristinn Óskarsson, FIBA dómari, hefur tekið saman þær breytingar sem gerðar voru á leikreglunum í sumar.

8/26/2004
Kristinn, Sigmundur og Pétur Hrafn fengu verkefni

Íslenskir dómarar hafa fengið verkefni á erlendri grundu í september.

8/20/2004
Helgi skipaður í dómaranefnd

Stjórn KKDÍ skipaði í gær Helga Bragason sem sinn fulltrúa í dómaranefnd.

8/6/2004
Sigmundur til Englands

Sigmundur Már Herbertsson sem nýkominn er frá Andorra, fór í gær og verður í 12 daga í Englandi þar sem hann er með U88 landsliði drengja.

7/29/2004
Kristinn í Eistlandi

Kristinn Óskarsson heldur í dag, fimmtudag, til Eistland með U88 landsliði kvenna. Þar mun hann dæma í B deild Evrópukeppninnar en mótið fer fram í Rakvere.

7/20/2004
Sigmundur til Andorra

Sigmundur Már Herbertsson heldur til Andorra nú á laugardaginn með A landsliði kvenna þar sem hann mun dæma á Promotion Cup kvenna.

7/13/2004
Rögnvaldur fer á Norðurlandamót kvenna

Rögnvaldur Hreiðarsson hefur verið tilnefndur til að dæma á Norðurlandamóti kvenna sem fram fer í Arvika í Svíþjóð í ágúst.

7/6/2004
Rögnvaldur, Lárus og Karl sigruðu

Golfmót KKDÍ fór fram á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysuströnd þann 18. júní og var leikið af mikilli hörku.

6/29/2004
Ný stjórn tekin til starfa

Nýkjörin stjórn KKDÍ hélt sinn fyrsta fund í kvöld og skipti með sér verkum. Nýr formaður félagsins er Kristinn Óskarsson.

6/18/2004
Reglubreytingar 2004

FIBA hefur gefið út breyttar leikreglur sem taka munu gildi 1. september 2004.

6/15/2004
Dómaraþing afstaðið

Dómaraþing KKDÍ var haldið í gær á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði.

6/15/2004
Helgi á námskeið fyrir leiðbeinendur

Helgi Bragason fer á morgun til Kanaríeyja, þar sem hann mun taka þátt í námskeiði fyrir leiðbeinendur á vegum FIBA.

6/9/2004
Inge Braathen leggur flautuna á hilluna

Norski körfuknattleiksvefurinn Basket.no greinir frá því að einn besti dómari Norðmanna síðustu ár, Inge Braathen, hefur lagt flautuna á hilluna.

6/4/2004
Sigmundur á endurmenntunarnámskeið FIBA

Sigmundur Már Herbertsson heldur nú á laugardaginn til Kanaríeyja þar sem hann tekur þátt í endurmenntunarnámskeiði á vegum FIBA.

5/27/2004
Kristinn Óskarsson á endurmenntunarnámskeið FIBA

Kristinn Óskarsson heldur nú á laugardaginn til Kanaríeyja þar sem hann tekur þátt í endurmenntunarnámskeiði á vegum FIBA.

5/12/2004
Brynjar dæmir í Gautaborg

Brynjar Örn Steingrímsson, einn af upprennandi dómurum Íslands heldur til Gautaborgar þann 19. maí og mun dæma á Gautaborgarfestivalinu sem lýkur 23. maí.

5/4/2004
Sigmundur, Björgvin, Eggert og Erlingur

Dómaranefnd KKÍ hefur valið fjóra dómara til að dæma á Norðurlandamótið sem fer fram í Solna í Svíþjóð dagana 20.-23. maí.

4/18/2004
Leifur kosinn bestur

Leifur S. Garðarsson var kjörinn dómari ársins af leikmönnum Intersportdeildarinnar á lokahófi KKÍ á föstudaginn. Þetta er í áttunda skiptið sem Leifur hlýtur þessa nafnbót, þar af í sjötta skiptið í röð.

4/9/2004
Bjarni dæmir á Scania Cup

Bjarni Gaukur Þórmundsson er nú um páskana staddur í Svíþjóð að dæma á hinu árlega Scania Cup. Bjarni hefur ekki verið við dómgæslu á Íslandi í vetur þar sem hann var þjálfari Selfoss í 1. deildinni. Það mun þó vera stefnan að koma aftur til starfa næsta haust.

4/1/2004
KKDÍ dómarar í verkfall

Á löngum fundi félagsmanna KKDÍ með formanni og framkvæmdastjóra KKÍ var samþykkt að leggja niður störf það sem eftir lifir tímabils.

4/1/2004
Dómarar í leikbann

Fyrr í morgun barst íslenskum dómurum bréf í hendur frá FIBA Europe um að allir þeir dómara sem tóku þátt í námskeiði í Svíþjóð í haust þar sem Allan Richardson var fyrirlesari séu í leikbanni frá 1. apríl til 30. nóvember 2004.

3/31/2004
Leifur og Páll Axel bestir

Leifur Garðarsson var kjörinn besti dómarinn í Úrvalsdeild af notendum KKDÍ. Þetta er fimmta árið í röð sem hann hlýtur þennan titil. Besti leikmaðurinn að þessu sinni var valinn Páll Axel Vilbergsson úr Grindavík.

3/31/2004
Sjö lið með fulltrúa í liði ársins

Njarðvíkingar eiga tvo leikmenn í byrjunarliði í liði ársins að þessu sinni og auk þess einn varamann.

3/31/2004
Leifur og Erla Þorsteins best

Erla Þorsteinsdóttir var valin besti leikmaður 1. deildar kvenna af notendum KKDÍ.is. Leifur Garðarsson var valinn besti dómari deildarinnar.

3/26/2004
Sigmundur til Andorra

Sigmundur Már Herbertsson hefur verið tilnefndur af FIBA til að dæma á Promotion cup kvenna í Andorra dagana 26.-31. júlí í sumar. Þar keppa 10 þjóðir í tveimur riðlum. Þetta er í annað skiptið sem Sigmundur fer til verkefna á vegum FIBA en hann fór til Ítalíu síðastliðið sumar.

3/5/2004
Leifur leggur FIBA flautuna á hilluna

Nú hefur Leifur S. Garðarsson lagt FIBA flautuna á hilluna eftir 11 ára starf sem slíkur.

3/4/2004
Helgi hættir sem FIBA dómari

Helgi Bragason hefur ákveðið að leggja FIBA flautuna á hilluna eftir að hafa verið slíkur í 12 ár.

2/27/2004
Jan Gjetterman hættir sem FIBA dómari

Góðvinur íslenskra körfuknattleiksunnenda, Jan Gjetterman, hefur lagt FIBA flautuna á hilluna. Fáir dómarar hafa komið jafn oft til Íslands og Jan en síðast kom hann í desember og dæmdi leik Keflavíkur og Toulon.

2/23/2004
Hindrunarhlaup dómara

Mikil umræða um stöðu dómaramála innan körfuboltans síðustu daga urðu tilefni þess að Karl Jónsson ákvað að koma sínum hugmyndum á blað til birtingar á KKDÍ.is.

2/5/2004
Leifur og Rögnvaldur dæma karlaleikinn

Dómaranefnd hefur gefið út hverjir dæma bikarúrslitaleikina um helgina. Karlaleikinn dæma þeir Leifur Garðarsson og Rögnvaldur Hreiðarsson en kvennaleikinn þeir Helgi Bragason og Georg Andersen.

2/3/2004
Frönsk flautakarfa í framlenginu

Leifur Garðarsson lenti heldur betur í fjörugum leik í kvöld, þegar SLUC Nancy tók á móti NIS Vojvodina.

2/1/2004
Leifur með tvo í Frakklandi

Leifur Garðarsson heldur til Frakklands í nú vikunni og dæmir tvo leiki. Á þriðjudag dæmir hann leik SLUC Nancy og NIS Vojvodina frá Serbíu í Evrópudeild karla og á miðvikudag leik Bourges Basekt og Euroleasing-Orsi frá Ungverjalandi í Evrópudeild kvenna.

1/26/2004
Landsbyggðin er eyðimörk fyrir þá gráklæddu

Sigurður Elvar Þórólfsson blaðamaður á Morgunblaðinu varð við óskum okkar hér á KKDÍ.is um að senda okkur hugleiðingu um dómaramál. Sjálfur var Elvar lengi leikstjórnandi Skallagríms og ÍA og hefur því mikla þekkingu á körfuknattleik.

1/22/2004
Schmidt og Willams

Það verða Þjóðverjinn Boris Schmidt og Englendingurinn Keith Williams sem dæma leik Keflavíkur og Dijon í Keflavík annað kvöld, föstudag. Eftirlitsdómari verður sem fyrr Pétur Hrafn Sigurðsson.

1/20/2004
Kristinn Óskarsson í Frakklandi

Kristinn Óskarsson hélt til Frakklands í gær til dómgæslu á vegum FIBA. Hann dæmir tvo leiki í ferðinni, annars vegar leik Basket Racing Paris og Anwil Wlolawek frá Póllandi í Evrópudeildinni. Hins vegar dæmir hann leik USO Mondeville og Kozachka - Zalk Zaporozhye frá Úkraínu í Evrópubikarkeppni kvenna. Það er Portúgalinn José Araujo sem dæmir leikina með Kristni.

1/8/2004
Leifur fær tilnefningar

FIBA hefur gefið frá sér nýja niðurröðun og fékk Leifur S. Garðarsson tvær tilnefningar. Hann fer til Frakklands í byrjun febrúar og dæmir tvo leiki. Þann 3. dæmir hann leik Sluc Nancy og NIS Vojvodina frá Serbíu, í Evrópudeild karla. Daginn eftir dæmir hann svo leik Bourges Basket og Euroleasing-Orsi frá Ungverjalandi, í Evrópudeild kvenna. Með Leif í þessum leikjum verður pólski dómarinn Grzegors Ziemblicki.

2003
12/5/2003
Jan og John dæma í Keflavík
KKDI.is heldur áfram að kynna dómara leikja Keflavíkur í Evrópukeppninni. Næstkomandi miðvikudag tekur Keflavík á móti Toulon frá Frakklandi. Dómarar í þeim leik verða Jan Gjetterman frá Danmörku og John Hammervoll.

12/3/2003
Kristinn Óskarsson til Frakklands - aftur

Kristinn Óskarsson fékk tvö verkefni á vegum FIBA í janúar, hann fer til Frakklands og dæmir leik Basket Racing Paris og Anwil Wloclawek frá Póllandi í Evrópudeildinni þann 20. janúar. Daginn eftir dæmir hann leik USO Mondeville og Kozachka - Zalk Zaporozhye frá Úkraínu, í Evrópubikarkeppni kvenna.

12/2/2003
Vel heppnað afmælishóf

KKDÍ efndi fyrir stuttu til afmæliskvöldverðar í tilefni 40 afmælis félagsins. Vel á fimmta tug manns mætti til kvöldverðarins og skemmti sér frábærlega.

11/22/2003
Hollendingur og Dani dæma í Keflavík

Það verða þeir Nicolaas Zwiep frá Hollandi og Rune Larsen frá Danmörku sem dæma leik Keflavíkur og Madeira næstkomandi miðvikudag í Evrópubikarkeppninni. KKDI.is náði tali af Rune og spurði hann nokkurra spurninga sem hann svaraði glaður í bragði.

11/20/2003
Aðalsteinn og Björgvin dæma úrslitaleikinn

Dómaranefnd KKÍ hefur tilnefnt dómara á úrslitaleik Hópbílabikarsins næstkomandi laugardag. Leikinn munu dæma Aðalsteinn Hjartarson og Björgvin Rúnarsson.

11/11/2003
KKDÍ 40 ára

KKDÍ er fertugt í dag, 11. nóvember. Félagið var endurvakið árið 1998 eftir að hafa legið í dvala í tæp 30 ár.

11/5/2003
Englendingur og Norðmaður dæma

Dómarar leiksins í Keflavík í kvöld eru Englendingurinn Rob Hickman og Norðmaðurinn Jan Korshavn. Eftirlitsdómari verður svo Pétur Hrafn Sigurðsson.

10/29/2003
Tvö dómaranámskeið á næstunni

Tvö dómaranámskeið verða haldi nú á næstunni á vegum KKÍ. Fyrra námskeiðið verður haldið í Reykjavík, hitt á Akureyri.

10/15/2003
Kristinn Óskarsson til Frakklands

Kristinn Óskarsson hefur fengið tvö verkefni frá FIBA en hann fer til Frakklands í lok nóvember. Leikirnir eru báðir í Evrópukeppni félagsliða kvenna.

10/9/2003
Dómaravélmenni

Í vetur er stefnan hjá okkur hér á kkdi.is að vera með pistla frá hinum ýmsu höfundum. Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, ríður á vaðið og fjallar um notkun tækninnar við dómgæslu leikja. Pistillinn er afar áhugaverður.

10/8/2003
Breytingar á dómarahópnum í vetur

Intersportdeildin hefst á morgun og dómaranefnd hefur skipað dómurum í flokka. Nokkrar breytingar verða á dómarahópnum sem dæmir í Intersportdeildinni í vetur og liggja ýmsar ástæður að baki.

10/1/2003
Leifur dæmir kvennaleik í Wales

Leifur S. Garðarsson fékk nú dag úthlutað tveimur verkefnum frá FIBA. Þann 29. október átti hann að dæma leik BF Copenhagen og KK Hemofarm frá Serbíu/Svartfjallalandi í Kaupmannahöfn en danska liðið hefur verið lýst gjaldþrota því verður ekkert af þeim leik. Og daginn eftir í Wales, leik Rhondda Rabels og Delta Bakset frá Írlandi.

9/22/2003
Nýr liður á KKDÍ.is: Dómarabálkur

Dómarar hafa nú hafist handa við að blogga, en Dómarabálkur er nýr liður á KKDÍ.is. Það er von félagsins að þessari nýbreytni verði vel tekið.

9/11/2003
Ferðasaga: Eurobasket 2003

Það var mikið fjör og mikið gaman á Eurobasket 2003. Þrettán dómarar héldu til Borås í Svíþjóð, m.a. til að fylgjast með þeim viðburði.

9/3/2003
Haldið til Borås

Að morgni 4. september leggja á annan tug íslenskra körfuknattleiksdómara af stað til Borås í Svíþjóð á fjölþjóðlegt dómaranámskeið í tengslum við Evrópukeppnina í körfuknattleik.

8/29/2003
Undirbúningur dómara

Rétt eins og lið eru körfuknattleiksdómarar að undirbúa sig fyrir veturinn að kostgæfni. Framundan eru Valsmót, Reykjavíkurmót og Reykjanesmót auk annara móta og munu dómarar nota þau til að dusta rykið af gömlum töktum.

8/23/2003
Kristinn og Sigmundur unnu golfmótið

Golfmót KKDÍ fór fram á Kálfatjarnarvelli að þessu sinni. Kristinn Óskarsson og Sigmundur Már Herbertsson urðu hlutskarpastir í ár.

8/14/2003
Skipulag leikdaga

Kristinn Óskarsson er síður en svo sáttur við skipulag leikdaga í efstu deild karla fyrir komandi tímabil.

7/7/2003
Breytingar á leikreglum

FIBA hefur nú tilkynnt þær reglubreytingar sem verða á körfuknattleik nú í haust. Breytingar hafa verið gerða á reglum um skotklukku, dómaraköst og leikhlé.

7/1/2003
Kristinn Óskarsson fær góða dóma

Kristinn Óskarsson dæmdi á Smáþjóðaleikunum á Möltu í byrjun júní. KKDI.IS náði tali af Pétri Hrafni Sigurðssyni farastjóra íslenska hópsins og alþjóðlegum eftirlitsmanni og spurði hann út í gengi Kristins. Pétur segir að Kristinn hafi staðið sig vel og það sem mestu máli skipti er að Kosta Iliev æðsti maður FIBA og eftirlitsmaður mótsins var ánægður með hann.

7/1/2003
Sigmundur alþjóðlegur dómari

Sigmundur Már Herbertsson er 10. alþjóðadómarinn frá Íslandi. Niðurstöður af námskeiði sem hann og Jón Bender þreyttu í Amsterdam um síðust helgi liggja nú fyrir.

6/21/2003
Tveir íslenskir dómarar á FIBA námskeið

Jón Bender og Sigmundur Már Herbertsson héldu til Amsterdam núna um helgina til að sitja alþjóðlegt dómaranámskeið á vegum FIBA. Þeir hafa verið undir handleiðslu Jan Holmin FIBA-instructor í vetur og farið tvisvar til Svíþjóðar auk þess sem Jan Holmin kom til Íslands síðastliðið haus.

6/10/2003
Simmi og Bender stóðu sig vel

Á dögunum fóru þeir Sigmundur Már og Jón Bender að dæma á NM yngri landsliða í Svíþjóð. Jan Holmin kom til þess að kíkja á strákana. KKDI.IS lék forvitni á að vita hvernig strákarnir stóðu sig og settum við okkur í samband við Hannes S. Jónsson varaformann KKÍ og dómaranefndarmann en hann var aðalfararstjóri íslenska hópsins.

6/4/2003
Jón Bender nýr formaður

Eins og kkdi.is greindi frá á dögunum urðu breytingar á stjórn KKDÍ á síðasta Dómaraþingi. Formaður félagsins frá endurvakningu þess Kristinn Albertsson gaf ekki kost á sér lengur og var Kristinn Óskarsson kjörinn í hans stað í stjórnina.

6/1/2003
Kristinn Ó til Möltu

Nú þegar von er á Svíþjóðarförum heim þá leggjast aðrir dómarar í víking. Kristinn Óskarsson fór með íslensku A landsliðunum til Möltu á Smáþjóðaleikana og mun dæma þar ásamt dómurum hinna þjóðanna og ítölskum dómurum. Helgi Bragason hafði verið útnefndur til fararinnar en komst ekki þar sem hann veiktist rétt fyrir brottför.

5/27/2003
4 á leið til Svíþjóðar að dæma

Það má segja að nóg sé að gera hjá íslenskum dómurum þessa dagana. Nýlokið er 6 leikjum við Norðmenn hér heima og 4 dómarar halda til Svíþjóðar á morgun og verða fram á mánudag.

5/6/2003
Formaður Dómaranefndar í viðtali við kkdi.is

Bergur Steingrímsson er í forsvari fyrir dómaranefnd. KKDÍ.is fannst því kjörið að spjalla við hann um nýliðið tímabil og störf nefndarinnar. Bergur er framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur og var dómari í efstu deild í um 20 ár.

4/22/2003
Leifur bestur 5. árið í röð

Leifur S. Garðarsson var kjörinn besti dómari Intersportdeildarinnar fimmta árið í röð á lokahófi KKÍ sem fram fór í Stapanum 16. apríl. Það eru leikmenn deildarinnar sem kjósa og er þetta í 7. skipti sem Leifur hlýtur þennan titil, oftar en nokkur annar dómari.

4/13/2003
Nýir menn í ritstjórn KKDÍ.is

Borgnesingarnir Guðni og Konráð hafa bæst í ritstjórn KKDÍ.is

3/28/2003
Sjö lið með fulltrúa í liði ársins

Liðin fimm fyrir Intersport deildina hafa nú verið sett saman og þar er margt forvitnilegt að sjá.

3/28/2003
Sigmundur besti dómarinn í 1. deild kvenna

Sigmundur Már Herbertsson var kjörinn besti dómarinn í 1. deild kvenna tímabilið, en þetta er í annað skiptið sem hann vinnur titilinn.

3/28/2003
Leifur efstur fjórða árið í röð

Leifur Garðarsson var sá eini sem varði titil sinn frá síðasta ári. Damon Johnson, sem var besti útlendingurinn í fyrra, var nú kjörinn besti íslenski leikmaðurinn.

3/7/2003
Kristinn Albertsson leikjahæstur í Úrvalsdeild

Kristinn trónir á toppnum yfir flesta leiki dæmda í Úrvalsdeildinni með 432 leiki dæmda.

2/25/2003
Afar dæmdu saman

Sá einstaki atburður átti sér stað í gærkvöldi að afar dæmdu saman í fyrsta skipti leik ÍS og Grindavíkur. Þetta voru þeir Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson. Leikurinn hefði þó getað orðið sögulegri ef amman Hafdís Helgadóttir hefði leikið með ÍS liðinu.

2/21/2003
Kristinn Óskarsson fer til Tyrklands um páskana

Kristinn Óskarsson FIBA dómari hefur verið tilnefndur af FIBA til að dæma í Tyrklandi um páskana. Reyndar var Leifi Garðarssyni boðið að dæma í mótinu en hann átti ekki heimangengt

2/5/2003
Sigmundur og Einar E dæma bikarúrslitaleik karla

Það verða Sigmundur Már Herbertsson og Einar Einarsson sem dæma bikarúrslitaleik Keflavíkur og Snæfells á laugardaginn. Þetta er í annað skiptið sem Sigmundur dæmir bikarúrslitaleik karla en Einar er aftur á móti að mæta í bikarúrslitaleik karla í fyrsta skipti.

2/5/2003
Leifur og Björgvin dæma bikarúrslitaleik kvenna

Leifur S. Garðarsson og Björgvin Rúnarsson munu dæma bikarúslitaleik Keflavíkur og ÍS á laugardaginn. Leifur er að dæma sinn þriðja bikarúrslitaleik kvenna en Björgvin annan.

2002
11/22/2002
Haukar koma mest á óvart
Síðustu tvær kannanir sýndu að Haukar eru það lið sem hefur komið mesta á óvart í Intersport deildinni og munu mæta Keflvíkingum í úrslitaleik um Kjörísbikarinn.

10/6/2002
Holmin í heimsókn

Jan Holmin, eftirlitsdómari hjá FIBA, kom á Valsmótið 2002 til að fylgjast með störfum dómara á mótinu. KKDÍ.is tók hann tali af því tilefni.

10/3/2002
Kristján Möller leggur flautuna á hilluna

Sunnudaginn 6. október mun einn ástsælasti dómari körfuknattleiksins á Íslandi, Kristján Möller, dæma sinn síðasta leik. Kristján hefur dæmt 577 leiki í mótum á vegum KKÍ og þar af 269 í Úrvalsdeild.

8/23/2002
Ný dómaranefnd KKÍ

Tveir nýir menn eru komnir í dómaranefnd KKÍ, en þeir koma í stað Helga Bragasonar og Leifs Garðarssonar.

5/10/2002
Leifur fyrsti hlutlausi íslenski dómarinn

Þó nú sé sumarfrí hjá flestum körfuknattleiksiðkendum á Íslandi þá er nóg framundan hjá dómurum. Í lok maí fara FIBA dómararnir 4 til Luxembourg á námskeið hjá FIBA. Leifur S. Garðarsson fer sem hlutlaus dómari á úrslitakeppni unglinglandsliða karla og einnig til Írlands, auk þess sem nafnarnir Kristinn Óskarsson og Albertsson fara til Andorra og Möltu.

4/22/2002
Nýliðar Blika með mann í byrjunarliðinu

Við settum saman nokkur lið út frá atkvæðunum og hér birtum við afraksturinn.

4/22/2002
Leifur besti dómarinn í þriðja skiptið

Nú eru niðurstöðurnar úr stóru könnuninni komnar í hús. Þátttakan var ágæt, en 105 manns tóku þátt.

3/22/2002
Breytt keppnisfyrirkomulag

Karl Jónsson, unglingaþjálfari, viðrar hér hugmyndir sínar varðandi breytingar á keppnisfyrirkomulagi yngstu aldursflokkanna.

2/26/2002
BLNO - Spor í rétta átt

Guðni Ölversson, körfuboltaspekúlant úr Grindavík, hefur verið búsettur í Noregi um skeið. Hann starfar fyrir körfuknattleiksliðið Centrum Tigers í BLNO deildinni. Guðni féllst á að senda okkur pistil um norska fyrirkomulagið og það er aldrei að vita nema pistlarnir verði fleiri.

2/25/2002
Leikreglutúlkanir, febrúar 2002

Leifur Garðarsson, formaður dómaranefndar KKÍ, hefur tekið saman nokkur atriði úr leikreglunum og hripað niður túlkanir á nokkrum framkvæmdaratriðum.

2/19/2002
Ég dæmi bara það sem ég sé!!!

Við fundum í fórum okkar pistil eftir Ólaf Rafnsson, formann KKÍ, og ákváðum að skella honum inn á vefinn, gestum hans til skemmtunar. Hér fjallar Ólafur um þekktan palladómara sem lenti óvænt hinum megin við borðið.

2/5/2002
Leifur mundaði flautuna í Siena

Leifur S. Garðarsson dæmdi leik Siena og Sarthe Basket í Saporta Cup í kvöld, leiknum lauk með sigri heimamanna sem tryggðu sér sigur í riðlinum.

1/25/2002
Nú er það Ítalía

Leifur Garðarsson virðist vera að gera það gott í Evrópu því verkefnin á erlendri grundu halda áfram að streyma inn. Nú er það Ítalía sem býður hann velkominn í byrjun febrúar.

2001
12/19/2001
Áhugi á leikreglum
Einar Einarsson hefur í vetur gert óformlega könnun á því hversu margir leikmenn í Úrvalsdeildinni hafa lesið reglurnar. Niðurstaðan hefur, vægast sagt, komið á óvart. Í pistli sínum greinir frá niðurstöðum könnunarinnar og spjallar um ýmsa aðra þætti körfuboltans.

12/19/2001
Verkefnin halda áfram að streyma inn

Leifur S. Garðarsson heldur áfram að fá verkefni frá FIBA, nú á dögunum fékk hann tilnefningar um að fara til Spánar í janúar að dæma tvo leiki með einum af toppdómurum Evrópu. Auk þess ætlar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar að verðlauna hann fyrir góðan árangur á árinu.

12/3/2001
Hugleiðing um “andleg málefni”

Helgi Bragason hefur verið dómari í nærri 15 ár. Hann deilir hér með okkur sínum hugleiðingum um dómgæslustörfin og hvernig viðhorfið hefur breyst á þessum 15 árum.

11/27/2001
Hvað er að gerast?

Svali H. Björgvinsson, Valsari með meiru, spyr hvað sé að gerast í íslenskum körfuboltaheimi í dag. Hvers vegna fær karfan ekki viðundandi virðingu og hvernig er hægt að bæta úr því?

11/23/2001
Starfsreglur mótanefndar

Pétur Hrafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri KKÍ, sendi okkur grein sem svar við pistli Eggerts Þórs, og útskýrir um leið þann vanda sem Mótanefnd KKÍ á við að etja þegar kemur að frestun leikja.

11/22/2001
Af blind- og utanvegaakstri dómara

Mótamál hafa verið í umræðunni að undanförnu og mikið rætt um hvenær á að fresta leikjum og hvenær ekki. Veturinn 1999-2000 fór Eggert Þór Aðalsteinsson tvisvar í óvissuferð vegna sama leiksins.

11/20/2001
Leifur fær þrjá leiki í Þýskalandi

Eins og lesendur KKDÍ.is hafa fengið fréttir af hefur Leifur S. Garðarsson fengið mörg verkefni frá FIBA nú í haust, og þeim fjölgar enn. Í vikunni fékk Leifur úthlutað þremur leikjum í Þýskalandi dagana 11.- 13. desember.

11/15/2001
Mikill aldursmunur dómara

Það munaði 44 árum á dómurunum í leik Breiðabliks B og Fjölni C í 2. deild karla 13. nóvember síðastliðinn. Það er þó ekki mesti aldursmunur á dómurum í leik á vegum KKÍ.

11/6/2001
KR stefnir að sigri í deild sem má breytast

Þriðji gestapistillinn kemur úr Vesturbænum, en þar er á ferð þjálfari KR, Ingi Þór Steinþórsson. KR-ingar ætla að gera atlögu að öllum titlum, en Ingi hefur einnig sitthvað að segja um fyrirkomulag keppninnar í vetur.

11/5/2001
Fagmennska í framkvæmd og umgjörð leikja

Það er víða pottur brotinn varðandi framkvæmd og umgjörð leikja í efstu deildum á Íslandi. Kristinn Óskarsson reifar hér hugmyndir um hvernig er hægt að bæta úr því.

10/30/2001
Leifur fær fleiri verkefni

Leifur S. Garðarsson fékk þrjú verkefni þegar FIBA raðaði á næstu leiki. Hann dæmir einn leik í Írlandi og tvo í Frakklandi.

10/29/2001
Dómurum ritaður pistillinn

Ingvar Jónsson hefur löngum verið titlaður faðir körfuboltans í Hafnarfirði, enda alið upp og þjálfað meistaralið í öllum flokkum. Hér fjallar Ingvar um dómgæslu fyrr og nú í þessum öðrum gestapistli á KKDÍ.is.

10/26/2001
Leifur dæmir í C-riðli Evrópukeppninnar

Leifur Garðarsson hefur verið útnefndur af FIBA til að dæma landsleik Írlands og Makedóníu í Dyflinni þann 28. nóvember næstkomandi.

10/24/2001
Nostalgía?

Fyrsti gestapistill KKDÍ.is er skrifaður af fyrrum leikmanni Hauka, Ólafi Rafnssyni. Það er ekki laust við að örlítils söknuðar gæti í orðum hans.

10/23/2001
Nýliðun í dómarastétt

Nýliðun í dómarastétt hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarin ár, en því er hægt að breyta. Jón Bender viðrar hér sínar hugmyndir um lausn á þessum vanda.

10/18/2001
Jafntefli í fyrri leiknum

Leifur S. Garðarsson dæmdi tvo leiki í Belgíu í vikunni, þeim fyrri lauk með jafntefli og seinni með útisigri.

10/10/2001
Undirbúningur körfuknattleiksdómara

Körfuknattleiksdómarar þurfa jafnt og leikmenn að undirbúa sig vel fyrir nýtt keppnistímabil. Sá undirbúningur þarf bæði að vera líkamlegs og andlegs eðlis. Leifur Garðarsson fer yfir þann undirbúning sem að baki er.

10/10/2001
Nýtt útlit afhjúpað kl. 10:09!

Eins og glöggir notendur hafa vafalaust tekið eftir er búið að fríska örlítið upp á útlitið á KKDÍ.is og þótti sumum tími til kominn.

10/4/2001
Leifur dæmir í Korac Cup

Leifur Garðarsson hefur fengið tilnefningu frá FIBA að dæma tvo leiki í Korac-cup í Belgíu síðar í þessum mánuði.

9/25/2001
Dómarar eru ekki vélmenni

Það kannast ekki margir Íslendingar við Miguel Betancor, en hann er einn virtasti dómari í Evrópu.

9/24/2001
Dómaranámskeið um næstu helgi

Dómaranámskeið verða haldin um næstu helgi á þremur stöðum á landinu.

9/20/2001
Haustfundur um helgina

Árlegur haustfundur körfuknattleiksdómara verður haldinn nú helgina. Þar taka dómarar þrekpróf og skriflegt próf, auk þess sem farið verður yfir ýmis áhersluatriði í dómgæslu.

9/7/2001
Dómaranámskeið framundan

Dómaranámskeið fara nú að hefjast og verður fyrsta námskeið haustsins haldið á Selfossi.

5/13/2001
Árás á dómara gæti þýtt fjölflokkabann

Á 41. ársþingi KKÍ var tillaga um reglugerðarbreytingu er sneri að árásum leikmanna og þjálfara á dómara samþykkt.

4/16/2001
Rúnar, Erlingur og Eiríkur á Scania Cup

Þrír íslenskir dómarar voru á Scania Cup um páskana og dæmdu samtals um þrjátíu leiki.

4/4/2001
KR með þrjár í liði ársins

KKDÍ.is setti saman nokkur lið út frá atkvæðum í könnuninni fyrir 1. deild kvenna og hér er afraksturinn.

4/4/2001
Hanna best, Svava efnilegust

Niðurstöður í stóru könnuninni fyrir 1. deild kvenna eru loksins tilbúnar. Kosið var í tíu flokkum og alls var það 41 aðili sem tók þátt.

4/4/2001
Tveir KR-ingar í byrjunarliðinu

KKDÍ.is setti saman nokkur lið út frá atkvæðum í Epson könnuninni og hér er afraksturinn.

4/4/2001
Leifur bestur annað árið í röð

Niðurstöður í stóru Epson könnuninni eru komnar í hús. Kosið var í tíu flokkum og 105 manns tóku þátt.

3/2/2001
Áfram tólf lið í Epson deild

Það kom mjög skýrt fram að áhugafólk um körfubolta vill ekki taka upp norska siði og fækka liðum í Epson deildinni niður í átta... og ekki einu sinni í tíu lið.

3/1/2001
Tveir þriðju höfðu rangt fyrir sér

Tveir þriðju hlutar þeirra sem kusu töldu að Hamar ynni sigur á ÍR í úrslitum Doritos bikarsins. Þeir hinir sömu höfðu heldur betur rangt fyrir sér.

2/25/2001
Jón Otti er dómari aldarinnar

Lið aldarinnar voru kynnt í gær, ásamt leikmanni, þjálfurum og dómurum aldarinnar. Jón Otti Ólafsson var valinn dómari aldarinnar af 50 manna dómnefnd á vegum KKÍ.

2/18/2001
Eiríkur dæmir leik KR og Vals

Enn eru dómarar að fá smjörþefinn af dómgæslu í Epson deildinni og sá nýjasti er Eiríkur Ólafsson, en hann dæmir í dag ásamt Leifi Garðarssyni leik KR og Vals.

2/18/2001
Vinnur KR Doritos bikarinn?

Rúmlega helmingur þátttakenda telur að KR verði bikarmeistari í kvennaflokki þetta árið. Þó var mjótt á munum og Doritos bikarinn gæti því hæglega farið til Keflavíkur.

2/16/2001
Hefur fengið 13 leiki frá FIBA

Aðalsteini Hjartarsyni hefur heldur en ekki gengið vel í dómgæslunni að undanförnu. Það sem af er tímabilinu hefur hann fengið 13 FIBA leiki.

2/13/2001
Nokkur atriði úr reglunum

Sumar reglur valda oft ruglingi hjá áhorfendum, leikmönnum og þjálfurum. Hér eru nokkur atriði sem valdið hafa misskilningi að undanförnu.

1/17/2001
Nýr dómari í úrvalsdeild

Kristinn og Bjarni voru hvor á sínum endanum hvað varðar leikjafjölda í úrvalsdeild fyrir leikinn í gær.

1/15/2001
Ferðasaga dómara á Polar Cup

Erlingur Snær fór með unglingalandsliði Íslands á Polar Cup milli jóla og nýárs og hér fylgir ferðasagan.

1/15/2001
Jákvæðu atvikin vilja gleymast

Við veitum ekki prúðmennskuverðlaun, en það má alveg minnast á prúðmannlega framkomu leikmanna.

1/7/2001
214 áhorfendur að meðaltali á leik

KKDÍ.is tók saman aðsóknartölur í Epson deildinni fram að áramótum og bar þær saman við síðasta tímabil.

2000
10/7/2000
Yfirlit yfir reglubreytingar
Dómaranefnd KKÍ hefur gefið út yfirlit yfir nýjustu breytingar á leikreglum í körfuknattleik. Þær er einnig að finna á kki.is.

8/30/2000
Haustfundur á næstunni

Árlegur haustfundur körfuknattleiksdómara verður haldinn á Selfossi dagana 15. - 17. september.

5/25/2000
Þröstur og Georg unnu golfmótið

Eftir harða keppni stóðu Þröstur Ástþórsson og Georg Andersen uppi sem sigurvegarar mótsins.

5/15/2000
Matskerfi skal það vera

Notendur hafa gert upp hug sinn varðandi eflingu dómgæslunnar og matskerfið varð ofan á.

5/11/2000
Árlegt golfmót KKDÍ

Þriðja árlega golfmót KKDÍ verður haldið 20. maí næstkomandi. Núverandi og fyrrverandi dómurum er heimil þátttaka.

5/3/2000
Reglubreytingar í körfuknattleik

Kristinn Óskarsson komst yfir drög að reglubreytingum og ritaði stuttan pistil um málið.

5/3/2000
Leikjafjöldi dómara í úrvalsdeild

Rúnar Gíslason hefur samviskusamlega haldið utan um leikjafjölda dómara í úrvalsdeild frá upphafi. Hér eru nýjustu tölur.

4/17/2000
Úrslit kosninga í 1. deild kvenna

Anna María Sveinsdóttir var kjörin besti íslenski leikmaður 1. deildar kvenna af notendum KKDÍ vefjarins.

4/17/2000
Notendur hafa tröllatrú á KR

Nærri helmingur notenda telur að KR vinni rimmuna um Íslandsmeistaratitilinn í fjórum leikjum.

4/17/2000
Úrslit kosninga í Epson-deildinni

Teitur Örlygsson var valinn besti íslenski leikmaðurinn og besti íslenski varnarmaðurinn í þessari fyrstu kosningu á KKDÍ vefnum.

4/12/2000
Njarðvík spáð sigri í Epson-deildinni

Nærri helmingur þátttakenda taldi líklegast að Njarðvíkingar yrðu meistarar í Epson-deildinni og höfðu heldur betur rangt fyrir sér.

4/12/2000
Keflvíkingum spáð sigri í 1. d. kvenna

Það fór eins og flestir höfðu spáð hér á vefnum, Keflavík vann enn einn Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna.

3/18/2000
Friðrik Ingi nýtur stuðnings

Samkvæmst könnun sem gerð var á vefnum telur meirihluti fólks að gagnrýni DV á Friðrik Inga hafi ekki verið réttmæt.

3/12/2000
Dómgæslan stöðnuð?

Störf dómara í vetur koma ekki vel út ef marka má könnun sem gerð var á vefnum.

3/9/2000
Bréf frá Sviss

Aðalsteinn Hjartarson, FIBA dómari í Sviss, sendi okkur bréf fyrir stuttu, en í því ber hann m.a. saman íslenska og svissneska dómara.

3/6/2000
ÍR og Þór upp í úrvalsdeild?

Notendur telja líklegast að ÍR og Þór berjist um Íslandsmeistaratitilinn í ár, en hvort liðið stendur uppi sem sigurvegari er svo annað mál.

3/6/2000
Nýjar leiðir í dómgæslunni

Tvö svör hafa borist við grein Kristins Óskarssonar sem fjallar um hvort feta eigi aðrar brautir í dómgæslu hér á landi.

2/18/2000
Útlitsbreytingar á vefnum

Nú er hægt að prenta út allt efni KKDÍ vefjarins án vandræða og notendur geta tekið þátt í áhugaverðum umræðum.

2/5/2000
Könnun: Grindvíkingum spáð bikarnum

Flestir þátttakendurnir spáðu UMFG 4-10 stiga sigri gegn KR og það gekk eftir.

1/29/2000
Bréf frá stjórn KKDÍ

Peysukaup, þorrablót og næsti haustfundur körfuknattleiksdómara. Lesið nánar um það í bréfinu.

1/24/2000
Könnun: Fyrsta könnunin fór forgörðum

Fyrsta könnunin varð fyrir barðinu á leiðindapúkum sem jöfnuðu út atkvæðin.

1/10/2000
Nýjar leiðir í dómgæslunni

Eiga dómarar að stýra leiknum meira en nú er gert, þ.e. feta sömu braut og farin er í NBA? Kristinn Óskarsson veltir vöngum yfir þessari spurningu og vill gjarnan fá þína skoðun.

1999
11/28/1999
Dæmdir leikir í úrslitakeppni
Kristinn Albertsson er leikjahæstur dómara í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar frá upphafi.

11/23/1999
Nýr vefur opnaður án viðhafnar

Nýi vefurinn er allt öðruvísi í útliti en sá gamli og ekkert nema gott um það að segja.

11/21/1999
Dæmdir leikir dómara í úrvalsdeild

Kristinn Albertsson hefur velt Jóni Otta Ólafssyni úr efsta sætinu, en listinn sem við birtum miðast við dæmda leiki fram til 1. júní 1999.