|
Leifur S. Garðarsson
|
Nafn: Leifur Sigfinnur Garðarsson.
F.d. og ár: Friday, February 23, 1968.
Dómaraflokkur: FIBA dómari.
Félag: Haukar.
Hve margir leikir dæmdir: Um 850 talsins.
Hvenær laukstu dómaraprófi: 1987.
Fyrsti opinberi leikur: ÍA-Reynir Sandgerði á Akranesi, 6. nóvember 1987. Leikurinn var í 1. deild karla og endaði 70-58. Meðdómari var Kristinn Albertsson.
Hjúskaparstaða: Giftur Ástu Lilju Baldursdóttur.
Börn: Garðar Ingi Leifsson (11 ára), Anton Ingi Leifsson (7 ára) og Elsa Rut Leifsdóttir (3 ára).
Menntun: Grunnskólapróf frá Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, stúdentspróf frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði, háskólapróf frá Kennaraháskóla Íslands.
Stjórnuarnám Dipl.Ed. í Kennaraháskóla Íslands.
Alþjóðlegur körfuknattleiksdómari á Ítalíu 1993. Hef auk þess lokið við öll þjálfarstig Knattspyrnusambands Íslands.
Starf: Skólastjóri Áslandsskóla Hafnarfirði.
|
MOTTÓIÐ
|
|
Í kvöld er mikilvægasti leikurinn á ferli þínum.
|
|
Íþróttaferill: Lék um 100 leiki með meistaraflokki Hauka í körfuknattleik og varð bikarmeistari með liðinu 1985 og 1986. Var fyrirliði drengjalandsliðsins í körfuknattleik á keppnisferðalagi um Svíþjóð árið 1984.
Lék um 60 leiki með FH og Þór Akureyri í 1. deildinni í knattspyrnu. Lék um 20 leiki með ÍK úr Kópavogi og skoraði sex mörk árið 1991. Þjálfaði og lék með Sindra á Hornafirði í 4. deild árið 1992.
Lék handknattleik með FH að 18 ára aldri. Varð Íslandsmeistari með 3. flokki tvö ár í röð og Íslandsmeistari með 2. flokki einu sinni.
Hef starfað við knattspyrnuþjálfun sl. 17 ár hjá FH, KR, Sindra, Þór Akureyri.
Störf innan íþróttahreyfingarinnar: Ritstjóri Ruðnings - óháðs slúðurblaðs körfuknattleiksdómara til margra ára. Sat í dómaranefnd í yfir 10 ár. Yfirþjálfari knattspyrnudeildar KR 1998-2000. Sit í stjórn Everton klúbbsins á Íslandi. Hef verið framkvæmdastjóri knattspyrnudeilda FH og Þórs á Akureyri. Varaformaður Captain Morgan klúbbs dómara.
Uppáhaldslið í NBA: Hef verið mikill stuðningsmaður Seattle Supersonics allt frá tímum Gus Williams og Jack Sikma.
Úrvalsdeildin: Dæmdi fyrst í úrvalsdeild 2. október 1988, leik Vals og ÍS að Hlíðarenda með Jóni Otta Ólafssyni. Leikurinn endaði 114-47 fyrir Val.
Eftirminnilegasti leikurinn: Leikur Real Madrid og Benfica í Madrid í Evrópukeppninni. Leikinn dæmdi ég með Frakkanum Gilles Bretagne og Benfica sigraði með einu stigi 59-60. Leikurinn fór fram 8. október 1996.
Eftirminnilegasta atvikið: Þegar ég fékk gat á höfuðið í leik á Akranesi og dæmdi síðari hálfleikinn reifaður á hausnum, svona eins og með hvíta húfu.
Dómgæsla á erlendum vettvangi: Hef dæmt um 100 alþjóðaleiki í ýmsum keppnum eins og í Evrópukeppnum bikarhafa, félagsliða og landsliða, afmælismóti danska sambandsins, Spuerkease Cup í Luxembourg(nokkrum sinnum), Promotion Cup kvenna, Norðurlandamóti karla, Norður-Evrópukeppninni, Smáþjóðaleikum o.fl.
Önnur áhugamál: Flestar íþróttagreinar.
Mottóið: Í kvöld er mikilvægasti leikurinn á ferli þínum.
|
|